![Hafberg Þórisson í rafmagnsleysinu í kvöld.]()
„Þetta var að detta út áðan,“ segir Hafberg Þórisson, eigandi gróðrarstöðvarinnar Lambhaga, í samtali við mbl.is en rafmagn fór út í kvöld á Úlfarsárdal í Reykjavík þar sem fyrirtækið er. Unnið er hörðum höndum að því að bregðast við rafmagnsleysinu en Hafberg segist gera ráð fyrir því að vera á staðnum í alla nótt.