![Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við HÍ og Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir á blaðamannafundinum.]()
Meðalaukning smita á Íslandi er með því lægsta sem gerist í Evrópu og eru Íslendingar að standa sig mjög vel í baráttunni gegn veirunni. Aðgerðirnar sem hefur verið gripið til eru að skila árangri. Gögnin sýna heftan vöxt, ekki veldisvöxt. Þetta sagði Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við HÍ.