![Dísilvél úr Audi A3 TDI árgerð 2010 sem er ein þeirra tegunda sem Volkswagen hefur þurft að afturkalla vegna svikanna.]()
Greinendur í bílaiðnaði og fjárfestar eru byrjaðir að spá því að hneykslismálið í kringum bílaframleiðandann Volkswagen sem svindlaði á útblástursprófum geti valdið endalokum dísilbílsins. Evrópsk stjórnvöld höfðu hampað honum sem umhverfisvænni kosti en bensínbílum þrátt fyrir aukna loftmengun.